Við í Víðistaðaskóla höfum átt einstaklega skemmtilega og fjöruga daga í tengslum við vinaviku skólans. Síðustu þrjá daga hafa farið fram fjölgreindarleikar þar sem nemendum var skipt í hópa þvert á árganga, allt frá 1. upp í 10. bekk og allt skólastarf brotið upp.

Markmið leikanna var að efla samvinnu, styrkja tengsl milli nemenda og skapa jákvæða upplifun fyrir alla þátttakendur. Nemendur í unglingadeild stóðu sig með eindæmum vel og lögðu sig fram um að mynda tengsl við yngri nemendur, styðja þau og hvetja í gegnum verkefnin. Nemendur í 10. bekk gegndu hlutverki hópstjóra og báru ábyrgð á að fylgja hópunum á milli stöðva og virkja alla nemendur til þátttöku í leik og starfi.

Kennarar og starfsfólk höfðu undirbúið fjölbreyttar og skapandi stöðvar, alls um 40 talsins. Þar gátu nemendur meðal annars prófað að þæfa, þekkja fuglahljóð, þekkja lög, taka þátt í Snú-snú, fara í þrautabraut, spreyta sig í Kahoot, dansa undir limbó, iðka núvitund og yoga og margt fleira. Hver stöð bauð upp á nýjar áskoranir og tækifæri til samveru, gleði og samvinnu.

Það var virkilega ánægjulegt að sjá nemendur á öllum aldri vinna saman, kynnast og styðja hvert annað.