Við minnum á að haustfrí verður í skólanum mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október. Kennsla fellur niður þessa daga.

Jafnframt verður skertur skóladagur föstudaginn 23. október. Nemendur fá hádegisverð samkvæmt stundaskrá en fara síðan heim að loknum hádegisverði.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs haustfrís.