Gulur dagur er í dag, hann er haldinn í tengslum við átakaði Gulur september sem er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Tilgangurinn er að vekja athygli á geðrækt, mikilvægi samræðna og sjálfsvígsforvörnum. Við í Víðistaðaskóla ákváðum að slá saman Gula Deginum og Göngum í skólann. En eins og við vitum öll þá er hreyfing mikilvæg fyrir bæði líkamlega og andlega heilsu. Allir nemendur og starfsfólk skólans hittust í fyrsta tíma í morgun og gengu rúmlega 1,2 km í kringum Víðistaðatún og skólagarðana, flest voru íklædd gulu eða með eitthvað gult meðferðis. Við búum svo vel að vera með þessa fallegu náttúru allt í kringum skólann okkar, við nutum því samverunnar í fallegu haustveðri. Deila Tísta