Hér í Víðistaðaskóla hefur lengi verið hefð fyrir því að nemendur 7. bekkja séu með „Frímófjör“ á yngsta stigi. Frímófjör snýst um að virkja sem flest börn í skemmtilega hreyfileiki og kenna þeim nýja leiki. Markmiðið okkar er að allir séu velkomnir í leik. Nemendur í 7. bekk eru flottar fyrirmyndir fyrir yngri nemendur og það er heldur betur fjör þegar eldri nemendur mæta á skólalóðina hjá þeim yngri. Við stefnum á að hafa Frímófjör tvisvar í viku í næstu 8 vikurnar og endurtökum svo leikinn aftur í vor.
Víðistaðaskóli er Heilsueflandi skóli og vinnum við markvisst að heilsueflingu í skólastarfinu. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag og er Frímófjör einn liður í því að stuðla að þessum þáttum hjá nemendum.