Skólaráð

Skólinn

Skólaráð

Skólaráð grunnskóla er samstarfsvettvangur starfsfólks skóla, nemenda, foreldra og grenndarsamfélags. Ráðið er skipað 9 einstaklingum til tveggja ára í senn.

Skólastjóri boðar til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári og sendir út fundaáætlun skólaársins. Hann boðar til funda, sendir drög að umræðuefnum og stýrir fundum. Aðstoðarskólastjóri ritar fundargerð og sér til þess að þær birtist á vef skólans.

Helstu verkefni skólaráðs

  • Umfjallanir um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Umsagnir um áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
  • Að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Skólaráð Víðistaðaskóla 2026–2027

Nafn Hlutverk Netfang
Arnór Heiðarsson Skólastjóri [email protected]
Valgerður Júlíusdóttir Aðstoðarskólastjóri [email protected]
Annetta Franklín Karlsdóttir Fulltrúi kennara [email protected]
Sigríður Sól Hreinsdóttir Fulltrúi kennara [email protected]
Ríkarður Örn Ragnarsson Fulltrúi foreldra
Svala Þyrí Garðarsdóttir Fulltrúi foreldra
Halla Sigurðardóttir Fulltrúi grenndarsamfélags
Ástríður Ösp Sigurðardóttir Fulltrúi nemenda
Ari Hrafn Strange Fulltrúi nemenda

Fundargerðir

Veturinn 2026 - 2027