Víðistaðaskóli tekur þátt í tveggja ára tilraunaverkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem miðar að því að bæta aðgengi barna að þjónustu talmeinafræðinga og stytta biðtíma eftir talþjálfun. Verkefnið er unnið af Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og felur í sér aukna aðkomu talmeinafræðinga að skólaheilsugæslu. Með verkefninu er talþjálfun færð nær börnunum með því að veita þjónustuna innan skólans. Þannig geta börn fengið þjálfun í sínu nærumhverfi án þess að foreldrar þurfi að sækja þjónustuna á stofu talmeinafræðings. Markmið verkefnisins er jafnframt að efla samstarf milli talmeinafræðinga, foreldra og starfsfólks skóla til að styðja enn betur við málþroska og samskiptafærni barna. Skólatalmeinafræðingur mun sinna börnum sem þegar eru skráð á biðlista eftir þjónustu hjá sjálfstætt starfandi talmeinafræðingi. Það verður haft samband við foreldra þeirra baran sem kom til greina í verkefnið og því er ekki þörf á að senda sérstakar fyrirspurnir eða umsóknir. Ef spurningar vakna er foreldrum velkomið að hafa samband við skólatalmeinafræðing Víðistaðaskóla í gegnum netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar: Tilraunaverkefni hafið: Talþjálfun veitt í grunnskólum Talmeinafræðingar inn í grunnskóla Deila Tísta