Skólasetning í Víðistaðaskóla verður þriðjudaginn 25. ágúst nk. á sal skólans með eftirfarandi hætti: 08:30 2.-4. bekkur 09:30 5.-7. bekkur 10:30 8.-10. bekkur Nemendur og foreldrar koma saman á sal og fara svo í stofur með umsjónarkennurum. Engin hefðbundin kennsla er þennan dag og full kennsla hefst miðvikudaginn 26. ágúst. Foreldrasamtöl hjá 1. bekk eru 25. ágúst sem sérstaklega er boðað í, skólasetningin hjá 1. bekk er miðvikudaginn 26. ágúst klukkan 08:10 þar sem nemendur og foreldrar koma saman á sal, síðan hefst kennsla samkvæmt stundarskrá. Frístund er lokuð mánudaginn 24. ágúst og þriðjudaginn 25. ágúst. Deila Tísta