Heimilisfræði á mið- og unglingastigi fer vel af stað þetta skólaárið.
Nemendur í 6.-10. bekk byrjuðu á því að gera einfaldar próteinbeyglur sem komu rosalega vel út. Í þeim eru aðeins fjögur innihaldsefni: grískt jógúrt, sem gefur gott prótein, hveiti, lyftiduft og salt.
Nemendur ráða svo sjálfir hvað þeir setja ofan á beyglurnar. Þau hafa til dæmis valið kanilsykur, rifinn ost, parmesanost og alls konar krydd. Sumir hafa verið enn meira skapandi og sett kanil og rúsínur út í deigið, sem er hið besta mál.
Nokkrir hópar hafa einnig útbúið salatbar þar sem allir fá sitt verkefni og vinna saman að því að útbúa hlaðborð. Þar má meðal annars finna niðurskorið grænmeti, kalda sósu sem nemendur útbúa sjálfir og smakka til, Doritos-kjúkling og brauðteninga. Nemendur útbúa allt sjálfir frá grunni.
Í 5. bekk hefur líka verið nóg um að vera. Nemendur hafa farið yfir öryggi í eldhúsi, skoðað matarmenningu mismunandi landa, tekið þátt í heimilisfræðibingói sem vakti mikla lukku og útbúið ýmislegt góðgæti. Þar má meðal annars nefna eggjaköku, hafraklatta, focaccia brauð og fleira.
Það er því óhætt að segja að heimilisfræðin fari vel af stað og nemendur séu duglegir að prófa sig áfram, vinna saman og læra nýja hluti í eldhúsinu.
 -Lovísa Rós heimilisfræðikennari