Fyrsta skólavika nýs skólaárs er nú liðin. Nýr skólastjóri Víðistaðaskóla, Arnór Heiðarsson setti skólann þriðjudaginn 25. ágúst sl. Það hefur verið ljúft að fylla skólann aftur af lífi og hitta bæði nýja og gamla nemendur. Við bjóðum sérstaklega velkomin nýja nemendur í skólann bæði þau sem eru að hefja grunnskólagöngu í 1. bekk og jafnframt þau sem eru að koma úr Engidalsskóla, Barnaskólanum Hafnarfirði og öðrum skólum. Nú þegar rútinan er að komast á fullt viljum við minna foreldra og forráðamenn á að fylgjast vel með Mentor og fréttum hér á heimasíðu skólans. Samstarfs heimilis og skóla er okkur mikilvægt. Við þökkum kærlega fyrir frábæra fyrstu viku og hlökkum mikið til vetursins með þessum flotta hópi. Kveðja, Starfsfólk skólans Deila Tísta