Fimmtudaginn 16. apríl fór fram Litla upplestrarhátíðin hjá 4. bekk og tókst hún afar vel. Nemendur stóðu sig einstaklega vel og greinilegt var að undirbúningur og æfingar höfðu skilað sér. Flutningur þeirra var til fyrirmyndar og margir nemendur sýndu mikla hæfileika í fallegri og skýrri framsögn.

Það var einnig sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt dagskráin var, en óvenju mörg tónlistaratriði voru á hátíðinni. Arthur og Victor Atlas spiluðu á píanó, Viktor Hrafn lék á selló og Steinunn Kría á klarinett – öll atriðin voru afar vel heppnuð og settu skemmtilegan svip á dagskrána.

Heiðursgestur hátíðarinnar var Ingibjörg Einarsdóttir, ein af stofnendum Upplestrarhátíðarinnar. Þegar hátíðin var sett á laggirnar var markmiðið að efla framsögn og tjáningu meðal grunnskólanemenda. Stóra upplestrarhátíðin fagnar 30 ára afmæli í ár og sú litla 16 ára, og var þetta jafnframt síðasta árið hennar Ingibjargar í tengslum við hátíðina. Það var því sérstaklega ánægjulegt að hún skyldi þiggja boð okkar og vera með okkur á þessum degi.

Nemendur, undir leiðsögn þeirra Guðrúnar Jónsdóttur og Sigríðar Helgu Aðalsteinsdóttur kennara, hafa lagt mikla vinnu í undirbúninginn og má með sanni segja að sú vinna hafi skilað sér í glæsilegri hátíð.

Að hátíð lokinni áttu foreldrar, nemendur og kennarar saman góða stund inni í stofu þar sem boðið var upp á sameiginlegt og glæsilegt kaffiboð. Við þökkum foreldrum kærlega fyrir þátttökuna og frábærar veitingar.

Við erum afar stolt af þessum hæfileikaríku nemendum okkar og þökkum öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd kærlega fyrir.