Í dag þriðjudaginn 12. maí fóru fram krakkakosningar í grunnskólum Hafnarfjarðar, þar á meðal hjá okkur í Víðistaðaskóla. Markmið kosninganna er að gefa nemendum í 5.–10. bekk tækifæri til að láta rödd sína heyrast og kynnast lýðræðislegri þátttöku í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar sem framundan eru. Við fengum afhentan kjörkassa og kjörseðla og útbjuggum kjörklefa. Áður en nemendur gengu til kosninga horfðu þeir á stutt myndband þar sem fulltrúar allra framboða svöruðu spurningum frá Ungmennaráði Hafnarfjarðar. Að því loknu fengu nemendur tækifæri til að greiða atkvæði í leynilegri kosningu. Jafnframt var lögð áhersla á umræður um lýðræði, mikilvægi þátttöku og rétt barna til að tjá skoðanir sínar samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Atkvæði verða talin af starfsfólki ráðhússins og niðurstöður birtar á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar eftir að kjörstöðum lokar laugardaginn 16. maí. Krakkakosningarnar eru mikilvægt tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast kosningum og hafa áhrif með eigin rödd. Deila Tísta