Nemendur í 6. bekk hafa farið vikulega frá því í haust í heimsókn á Hrafnistu þar sem þau hafa verið að lesa fyrir íbúa. Þetta fallega lestrarverkefni er alltaf jafn gefandi fyrir bæði nemendur og íbúa Hrafnistu. Á föstudaginn var svo lokahóf þar sem þau buðu nemendum í köku og djús. Nokkrir krakkar voru með skemmtiatriði. Katrín Svala spilaði tvö lög á píanó, Einar Kolka spilaði á gítarinn, Katrín og Berglind Soffía dönsuðu dans, Baltasar og Birta sungu eitt lag hvort og eitt lag saman og svo sungu Talía, Snædís og Sólveig saman eitt lag.