Lið nemenda í 9. og 10. bekk náði frábærum árangri í úrslitum Skólahreystis sem fram fór laugardaginn 23. maí í beinni útsendingu á RÚV. Liðið lenti í 3. sæti og er það í fyrsta skipti í sögu skólans sem Víðistaðaskóli kemst í úrslit. Við erum gríðarlega stolt af þessum flottu krökkum og stuðningsliðinu sem hefur hvatt þau áfram. Deila Tísta