Það er gaman að segja frá því að nemendur í Víðistaðaskóla hlutu aðalverðlaun og samfélagsverðlaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Úrslitin voru kynnt þann 30. maí sl. Alls bárust rúmlega 500 hugmyndir hvaðanæva af landinu frá nemendum í 5. – 7. bekk. Af þeim voru 25 hugmyndir valdar til úrslita og tóku alls 38 nemendur þátt í vinnustofum og lokaviðburðum NKG 2026. Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir fengu aðalverðlaunin. Katrín Svala spilaði á píanó og saman héldu þær ræðu og kynntuverkefnið sitt sem er hjálmur á hlaupahjól. Hjólið fer ekki af stað fyrr en búið er að smella hjálminum á sig.
Elvar Ólafsson og Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman fengu samfélagsverðlaun fyrir saltblástursvél. Öll hlutu þau peningaverðlaun fyrir að komast í úrslit, ásamt Sólveigu sem var líka með frábært verkefni, og viðurkenningarskjöl.
Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Frábær árangur hjá nemendum okkar að ná inn fjórum verkefnum undir stjórn Ástu Sigríðar Ólafsdóttur kennara.