Hagnýtar upplýsingar

Foreldrar

Í skólanum er starfandi áfallaráð. Hlutverk þess er að skipuleggja viðbrögð við áföllum hjá nemendum og starfsfólki. Með áföllum er átt við alvarleg veikindi eða dauðsföll í nemendahópnum, hjá aðstandendum þeirra eða hjá starfsfólki, maka starfsfólks eða börnum. Ef slík tilvik koma upp er unnið eftir áfallaáætlun skólans. Einnig er áfallaráð kennurum og öðru starfsfólki til ráðgjafar þegar þurfa þykir. Áföll tilkynnast til skólastjóra sem stýrir áfallateymi og ákveður fyrstu viðbrögð.

Nemendur 1.–7. bekkja fara út í öllum frímínútum en nemendur elstu deildar mega vera innandyra.

Ef nemendur í 1.–7. bekk þurfa af einhverjum ástæðum að vera inni í frímínútum þurfa þeir að hafa með sér beiðni að heiman til umsjónarkennara, þar sem ástæða óskar um inniveru er tilgreind. Miðað er við að nemandi sé ekki inni í meira en einn dag eftir veikindi. Nemendur sem hafa leyfi til að vera inni í frímínútum eiga að vera í rauða sófanum við skrifstofu af öryggisástæðum. 

Gæslu í frímínútum sinna skóla- og frístundaliðar og kennarar ýmist úti eða inni. Ef veður hamlar útivist eru nemendur innandyra undir umsjón skóla- og frístundaliða.

1.–4. bekkur

  • Frímínútur eru kl. 9:30–9:50.
  • Í hádeginu er matur kl. 11:20–11:40 og frímínútur í beinu framhaldi af því til kl. 12:00.

5.–7. bekkur

  • Frímínútur eru kl. 9:30–9:50.
  • Í hádeginu er matarhlé hjá 5. bekk kl.11:20–11:40 og frímínútur í framhaldi af matarhléi til 12:00.
  • Matarhlé hjá 6. og 7. bekk eru kl. 11:40–12:00 og í framhaldi eru 20 mínútna frímínútur. Þessar tímasetningar geta verið breytilegar eftir dögum ef smiðjur eða íþróttir liggja að matarhléi. Eftir hádegi eru frímínútur í tíu mínútur á misjöfnum tímum eftir lengd skóladagsins.

8.–10. bekkur

  • Frímínútur kl. 9:30 í 20 mínútur og kl. 11:10–11:20.
  • Hádegishlé er kl. 12:10-12:50.
  • Eftir hádegi eru frímínútur í 10 mínútur frá 13:30–13:40.

Víðistaðaskóli á sinn skólasöng. Hörður Zophaníasson fyrsti skólastjóri skólans samdi textann en Siguróli Geirsson samdi lagið.

  • Á degi íslenskrar tungu er Stóra- og Litla upplestrarkeppnin sett af stað með hátíðlegri athöfn á sal skólans.  
  • Söngleikur er settur upp með nemendum 10. bekkjar í febrúar á hverju ári.
  • Helgileikur er sýndur í af 5. bekk í desember á hverju ári í Víðistaðakirkju og koma nemendur í 1.–7. bekk á sýningar auk þess sem leikskólum hverfisins er boðið.
  • Á haustönn er Vinavika og Bóka- og bíódagar.
  • Á vorönn eru þemadagar í 1.–9. bekk og á sama tíma æfir 10. bekkur fyrir söngleik ársins. Á vordögum er unnið heimabæjarverkefni um Hafnarfjörð.
  • Samsöngur er vikulega hjá 1.–4. bekk. Einu sinni á ári er hver bekkjardeild eða námshópur með vandaða dagskrá á sviði og foreldrum er boðið.
  • Árlega er hæfileikakeppni á miðstigi.
  • Í október er lýðræðisþing nemenda á öllum stigum.

Heimanám byggir á samstarfi heimila og skóla. Áhugi foreldra á skólagöngu og vinnu barna sinna getur skipt sköpum fyrir velgengni þeirra í námi. Rannsóknir hafa sýnt að þar sem vel tekst til með heimanám hefur það jákvæð áhrif á persónuþroska og námsárangur.

Heimanám er þáttur í daglegu lífi skólabarna þar sem foreldrar og forsjáraðilar fá tækifæri til að fylgjast með náminu og styðja við bakið á börnum sínum. Í heimanámi er tekið mið af þroska, áhuga og aðstæðum hvers og eins og er það einstaklingsmiðað þar sem það á við. Heima er mikilvægt að skapa ró og reglu í kringum heimanámið svo það verði jákvæð og uppbyggileg stund.

Markmið með heimanámi

  • Að nemendur þjálfi enn frekar og rifji upp það sem kennt hefur verið í skólanum.
  • Að nemendur öðlist smám saman færni í að undirbúa sig fyrir skólann.
  • Að nemendur þrói með sér góða námstækni og -vitund og verði sjálfstæðir í vinnubrögðum.
  • Að veita foreldrum og forsjáraðilum tækifæri til að taka þátt og fylgjast með námi barna sinna.

Hlutverk foreldra í heimanámi

  • Skapa ró og reglusemi í kringum heimanám.
  • Hjálpa barni sínu við að ljúka við heimanámi á réttum tíma.
  • Hjálpa barninu til að áætla tíma til heimanáms.
  • Styðja við bakið á barni sínu og hvetja það áfram við námið.
  • Láta kennarann vita ef barnið hefur ekki náð að ljúka við heimanámið á réttum tíma.
  • Láta kennarann vita ef heimanámið er ekki við hæfi nemenda (til dæmis of létt eða erfitt).

Lestur

Forsendur alls náms er færni í lestri og því mikilvægt að lestur sé þjálfaður bæði heima og í skóla. Áhersla á lestur er því stór hluti af heimanámi hvers nemanda.

Til að ná góðum árangri í lestri er mikilvægt að barnið lesi upphátt heima alla virka daga (raddlestur). Við upphaf lestrarnáms er góð regla að lesa hverja blaðsíðu að minnsta kosti tvisvar sinnum. Slík þjálfun gefur barninu aukna færni í lestri orðmynda, auk þess sem lesturinn verður oftast þjálli þegar sami texti er lesinn aftur. Lesa á í áheyrn fullorðins sem kvittar fyrir áheyrn í þar til gerð kvittanahefti. Áhersla er lögð á að nemendur fái efni við hæfi svo að lesturinn verði sem ánægjulegastur.

Foreldrar eru hvattir til að lesa áfram upphátt fyrir börn sín, jafnvel þó að þau séu sjálf farin að lesa. Flest börn ráða einungis við mjög léttan texta í byrjun en hafa þörf fyrir að vinna með flóknari texta sem fellur betur að þroska þeirra og áhuga. Lestur foreldra og umfjöllun um textann eykur orðaforða barnanna og bætir málþroska, en góður málþroski er einn af grunnþáttum alls náms.

Gott að hafa í huga

Friður og ró

  • Yngri nemendum (og líka mörgum eldri) finnst gott að vera í nálægð við einhvern fullorðinn við námið.
  • Námið hefur forgang.

Ekki of seint á kvöldin

  • Best er að taka frá fastan tíma til að sinna heimanámi.

Æfingin skapar meistarann 

  • Einn tilgangurinn með heimanámi er að endurtaka efni sem þegar hefur verið farið í, það er að þjálfa betur ákveðin atriði.

Talaðu jákvætt um heimanámið

  • Það er mikilvægt að líta heimanámið jákvæðum augum því jákvætt hugarfar auðveldar flest verk.
  • Forðastu samanburð við systkini eða aðra.
  • Mikilvægt er að virða hvern og einn eins og hann er. Jákvæð hvatning hjálpar en of mikil pressa getur skaðað.

Í Víðistaðaskóla er lögð áhersla á að taka vel á móti nýjum nemendum. Mikilvægt er að nemandinn og foreldrar hans fái strax í upphafi jákvæða mynd af skólanum og finnist þeir velkomnir í skólann. Foreldrar skrá barn sitt í skólann á Mínum síðum á vef Hafnarfjarðar.

Áður en nemandinn byrjar í skólanum boðar umsjónarkennarinn nemanda og foreldra hans á kynningarfund og sýnir þeim um skólann. Undantekning getur verið á ef nemandi þarf að byrja í skólanum nær fyrirvaralaust.

Móttaka nemanda á miðjum vetri  

Nemanda og foreldrum hans er boðið að koma í heimsókn í skólann. Stjórnendur, eða fulltrúi þeirra, taka á móti þeim og kynna skólastarfið og sýna þeim húsnæðið.

Umsjónarkennari sér um að:

  • Afla upplýsinga frá foreldrum um nemandann almennt, námsgengi (meðal annars athuganir og greiningar), félagslega stöðu, skólagöngu hingað til, heilsufar, trúarbrögð, tengsl við aðra í skólanum og svo framvegis.
  • Afhenda foreldrum og nemanda stundatöflu, ritfangalista og benda þeim á hvar frekari upplýsingar er að finna (til dæmis á heimasíðu skólans).
  • Gera foreldrum grein fyrir skólareglum, skólastefnu, starfsvenjum og upplýsingar um almenn atriði eins og viðtalstíma, nestismál, klæðnað í íþróttum, tilkynningar um forföll og leyfi og þess háttar.
  • Skipa nemandanum í viðeigandi hóp í sérgreinum og láta annað starfsfólk vita af nýjum nemanda.
  • Segja bekkjarfélögum frá komu nýs nemanda og virkja þá til að leiðbeina honum og auðvelda aðlögun í skólanum.
  • Láta bekkjarfulltrúa fá upplýsingar um að nýir samstarfsforeldrar hafi bæst í hópinn. 

Íslenska sem annað tungumál

Skólinn finnur nemanda bekk og undirbýr bekkjarfélaga fyrir komu hans. Nemandinn tengist tungumálaverinu Veröld og starfsfólki þess. Umsjónarkennari hefur umsjón með 

móttöku nemenda með annað móðurmál í sinn bekk og heldur utan um nám þeirra, nema eitthvað annað hafi verið ákveðið í einstaka tilfellum, til dæmis að sérkennari hafi þá ábyrgð). Nemandi fær sérstakan stuðning við íslenskukennslu. Í öllu skólastarfi er miðað að því að nemandinn geti tekið þátt í félagsstarfi í skólanum líkt og aðrir nemendur.

Margvíslegar aðferðir eru notaðar til að gefa nemendum mat á námi sínu, til dæmis próf, mat á ritgerðum og verkefnum og þátttökumat. Leiðbeinandi mat gerist yfir allt skólaárið með reglulegri endurgjöf til nemenda. Það felur í sér að benda nemanda á hvar hann er staddur, hvað hann kunni og geti gert betur, og hvetja nemendur í náminu til að auka líkur á því að hann nái.

Yfir veturinn er námsmat birt meðal annars í verkefnabókum og námsmatsmöppum í Mentor, undir námsmati. Staðan í náminu er rædd í foreldrasamráði.

Við lok skólaárs er gert lokamat sem segir til um hversu vel nemandi hefur náð viðmiðum sem lögð voru upp með í náminu.

Nemendur í unglingadeild Víðistaðaskóla geta fengið læstan skáp til afnota með samþykki og undirskrift foreldra. Skáparnir eru fyrst og fremst ætlaðir til þess að geyma skólabækur og námsgögn. Nemendur eiga ekki að geyma verðmæti, eins og farsíma og peninga, í skápunum. Skólinn ábyrgist ekki verðmæti sem kunna að tapast í skólanum.

Skáparnir eru númeraðir og fá nemendur lykil að tilteknum skáp. Nemendur greiða 1.500 krónur fyrir skápinn og fá 500 krónur endurgreiddar ef þeir skila skáp í góðu ásigkomulagi með lykli á réttum tíma. Skáparnir eiga alltaf að vera lokaðir og læstir þegar eigandi er ekki nærri.

Skólinn áskilur sér rétt til leitar í nemendaskápum ef nauðsyn krefur, til dæmis ef grunur leikur á að öryggi nemenda sé í húfi eða að ólögmætir hlutir leynist í nemendaskáp. Gerist nemandi brotlegur varðandi notkun og umgengni um nemendaskáp gæti hann átt á hættu að missa skápinn sinn.

Víðistaðaskóli notar náms- og upplýsingakerfið Mentor þar sem nemendur geta séð stundatöfluna sína, fylgst með ástundun og námsframvindu. Foreldrar og nemendur hafa aðgang að kerfinu með kennitölu og lykilorði. Foreldrar hafa einnig aðgang og geta fylgst með námsframvindu og skráningum í dagbók nemandans.

Foreldrar geta haft samband með tölvupósti við foreldra barna í bekk barnsins síns og kennara skólans í gegnum Mentor, tilkynnt veikindi og leyfi sem eru 2 dagar eða styttri, bókað viðtöl við kennara og fleira.

Oft safnast töluvert af óskilafatnaði á göngum skólans. Ef fötin eru merkt komast þau strax til skila og því mikilvægt að merkja föt, skó og aðrar eigur barnanna.

Óskilamunir eru teknir fram og eru sýnilegir á viðtalsdögum þegar búist er við foreldrum í skólann. Foreldrar geta líka komið við í skólanum hvenær sem er ef þeir sakna einhvers.

Fatnaður sem er ósóttur eftir lok hvers skólaárs er gefinn til Rauða krossins.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og skólayfirvöld.

Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Nemendur í grunnskólum í Hafnarfirði fá ókeypis stílabækur, skriffæri, möppur og önnur ritföng sem þeir þurfa á að halda í daglegu skólastarfi. Námsbækur eru einnig ókeypis eins og alltaf hefur verið. Ætlast er til að ritföng verði eftir í skólanum og að nemendur geti unnið heimanám með ritföngum sem eru til á heimilinu.

Foreldrar þurfa aðeins að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði og skriffærum til notkunar heima.

Markmiðið er að draga úr kostnaði foreldra við nám barna sinna, tryggja jafnræði, nýta fjármuni betur og draga úr sóun.

Ef nemendur eru með ofnæmi fyrir einhverjum matvælum er mikilvægt að upplýsa skólann og þau sem sjá um matinn um það.

Morgunmatur

Öllum grunnskólabörnum í Hafnarfirði er boðið upp á hafragraut 20 mínútum fyrir fyrstu kennslustund. Grauturinn er borinn fram í matsalnum frá 07:45–08:00.

Hádegismatur

Hægt er að skrá barn í heitan mat í hádeginu sem Skólamatur sér um. Matseðill fyrir vikuna birtist á vef skólans og Skólamatar.

Í byrjun skólaárs þarf að skrá barn í mataráskrift á vefsíðu Skólamatar. Það er hægt að velja fasta áskrift 5 daga vikunnar, sérstaka daga eða kaupa stakar máltíðir. Áskriftin framlengist sjálfkrafa um 1 mánuð, nema ef áskrift er sagt upp eða breytt.

Lögð er áhersla á næringu barna, umhverfissjónarmið og matarsóun. Allir matseðlar eru næringarútreiknaðir og farið eftir ráðleggingum embættis Landlæknis. 

Verðskrá

Nemendur sem kjósa að vera ekki í mataráskrift geta komið með nesti að heiman og borðað í matsalnum þar sem er aðgangur að örbylgjuofni og samlokugrillum.

Hressing

Á morgnana er hressing og hægt er að kaupa áskrift af ávöxtum- og grænmeti hjá Skólamat.

Systkinaafsláttur af mataráskrift

Ef þú átt 2 eða fleiri börn í grunnskóla færðu 25% afslátt af mataráskrift fyrir annað systkinið og 100% afslátt frá og með því þriðja. Systkini verða að vera með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í Þjóðskrá.

Ef þú uppfyllir þessar reglur þarf ekki að sækja um sérstaklega, annars þarf að sækja um á Mínum síðum Hafnarfjarðarbæjar. Sækja þarf um fyrir 20. mánaðar til að fá afslátt fyrir mánuðinn eftir. Afslátturinn er ekki afturvirkur.

Í Víðistaðaskóla fá allir nemendur í 5.—10. bekk spjaldtölvu til afnota.

Nemendur í 5.–7. bekk geyma spjaldtölvurnar að mestu í skólanum. Spjaldtölvurnar eru geymdar í sérstökum skáp þar sem þær eru hlaðnar yfir nótt. Kennari getur þó beðið nemendur um að taka spjaldtölvu með heim ef þörf er á til að vinna ákveðin verkefni.
 
Nemendur í 8.–10. bekk fara með spjaldtölvurnar heim í lok skóladags og koma með þær hlaðnar næsta skóladag. Mikilvægt er að tölvan sé alltaf fullhlaðin í byrjun dags þar sem hún er mikið notuð í kennslu og hætta á að tölvan eða hleðslutæki skemmist við að hlaða á göngum og í skólastofum. Ef það gerist þurfa foreldrar að útvega skólanum nýtt tæki.Við lok hvers skólaárs skila nemendur spjaldtölvunni ásamt hleðslutæki til skólans til geymslu yfir sumarið.

Skjáviðmið

Það er hlutverk foreldra og forsjáraðila að ákveða reglur um notkun spjaldtölvunnar heima fyrir, hvað nemandi má gera og hve lengi. Oft getur verið gott að foreldrar í bekk eða árgangi samræmi slíkar reglur sín á milli, hversu mikil notkun megi vera, hve lengi í einu, hve lengi fram eftir og svo framvegis.

Í boði er fjölbreytt úrval valmöguleika fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Sumar valgreinar eru sameiginlegar fyrir 8. – 10. bekk, aðrar fyrir 9. og 10. bekk og nokkrar valgreinar eru einungis fyrir 10. bekk. Valgreinabæklingur er sendur til nemenda á vorin og settur inn á svæði þeirra á Google-classroom og nemendur velja fög áður en skóla lýkur fyrir sumarið.

Valgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og kjarnagreinarnar og kröfur um ástundun og árangur þær sömu.

Val er bindandi fyrir komandi skólaár og því er mikilvægt að vanda valið. Ef ekki er nóg þátttaka í einstaka valgreinum geta þær fallið niður.

Metið val

Nemendur geta fengið metið nám utan skólans sem 2 kennslustundir á viku í staðinn fyrir valgrein. Ef nemandi stundar tvær íþróttagreinar eða nám utan skóla má fá 4 kennslustundir metnar. 

Dæmi:

  • Tónlistarskóli
  • Myndlistarskóli.
  • Nám við framhaldsskóla.
  • Skákskóli.
  • Reiðskóli.
  • Tungumálaskóli.
  • Dansskóli.
  • Skipulagt íþróttastarf.

Til að staðfesta þátttöku í utanskólavali þarf nemandi að skila sérstöku eyðublaði sem skólinn leggur til með undirskrift foreldris. Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á þessum skilum til að starfið fáist metið.

Veikindi

Foreldrar þurfa að tilkynna veikindi gegnum Mentor eða á skrifstofu skólans í síma 595 5800 fyrir 8:30. Ef það er ekki gert er litið svo á að um óheimila fjarvist sé að ræða. Standi veikindi yfir í nokkra daga á að tilkynna þau fyrir hvern dag.

Leyfi

Leyfi í 2 daga eða minna er hægt að tilkynna í Mentor, með tölvupósti eða hringja í skólann í síma 595 5800.

Leyfi fyrir meira en 2 daga þarf að tilkynna sérstaklega gegnum vefsíðu skólans. Skólinn gefur ekki út sérstakt heimanám eða sérverkefni til nemenda í leyfum né gerir tilfærslur á námi. Allt nám er á ábyrgð forsjáraðila meðan á leyfi stendur. 

Það er stefna Víðistaðaskóla að allt starfsumhverfi sé hættulaust, jafnt fyrir nemendur og starfsfólk. Það er mikilvægt að allir nemendur og starfsfólk skólans hafi þekkingu á og æfi rétt viðbrögð við hvers konar vá sem yfir getur dunið á skólatíma.

Stafrænar öryggismyndavélar eru utanhúss í skólanum og við suma innganga innanhúss. Markmiðið er að hafa rafræna vöktun á skólabyggingunni og skólalóðinni í öryggisskyni og til varnar því að eigur séu skemmdar eða þeim stolið.

Upptökur eru einungis skoðaðar ef upp koma atvik varðandi eignavörslu eða öryggi einstaklinga, eins og þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð en myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og eytt að þeim tíma loknum.

Vöktunin er útfærð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á vöktuðu svæðunum.