Eftirfarandi verkefni hafa verið unninn í smiðjunni listir og sköpun hjá Ástu Sigríði Ólafsdóttur listgreinakennara. Nemendur í 6. bekk hafa verið að vinna pappamassaverkefni, valið sér karakter, mótað og málað. Útkoman hefur verið stórkostleg og nemendur haft gaman af verkefninu. Nemendur í 8. bekk hafa verið að kynna sér listamanninn Ásgrím Jónsson, en hann fjallaði mikið um íslenskar þjóðsögur og landvætti í verkum sínum. Þau byggja sjálf upp myndina sína, tengja við þjóðsögu eða náttúruöflin, og mála svo á striga. Þau hafa fæst heyrt minnst á þjóðsögur en læra að með því að þekkja þær höldum við sagnaarfi Íslendinga lifandi. Deila Tísta