Á miðvikudaginn hefjast okkar árlegu þemadagar. Við ætlum að taka fyrir Ísland – hringinn í kringum landið. Við munum vinna í hópum í mismundandi verkefnum. Nemendur í unglingadeild velja sér verkefni út frá áhugasviði en verkefnið verður að tengjast Íslandi. Nemendur á miðstigi taka saman helstu einkenni um hvern landshluta landsins. Nemendur á yngsta stigi föndra, mála og vinna verkefni sem tengjast náttúrunni, eins og íslensk dýr, fjöll, eldfjöll o.s.frv.
Á föstudaginn verður opið hús fyrir foreldra/forsjáraðila og gesti þar sem nemendur fá að sýna afrakstur daganna. Opna húsið hefst stundvíslega kl. 11:30 á sal skólans. Eftir það ganga gestir um skólann og skoða afraksturinn.

Við hvetjum foreldra/forsjáraðila og gesti að koma og skoða hvað okkar frábæru nemendur eru að gera, það er mikil sköpun og hugmyndaflug á sveimi þessa daga.