Í Víðistaðaskóla er móttökudeild sem heitir Dögun sem er fyrir börn sem eru umsækjendur um vernd hér á landi. Lögð er áhersla á inngildingu þeirra í íslenskt skólakerfi hægt og örugglega þannig að skólaganga þeirra verði sem farsælust. Í Dögun leggjum við aðallega áherslu á nám í íslensku, stærðfræði, lífsleikni auk þess sem nemendur sækja fljótlega nám í íþróttum, list og verkgreinum með sínum heimabekk auk ensku þegar það á við. Í aðdraganda vorsins unnu nemendur verkefni um spörfugla Íslands hjá Ingibjörgu Ósk kennara, hlustuðu á sönginn og máluðu þessar fallegu myndir. Deila Tísta