Nemendur vinna nú hörðum höndum að því að setja á svið söngleikinn MAMMA MIA. Söngleikurinn verður sýndur helgina 13. – 15. febrúar í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Verkefnið er samstarfsverkefni nemenda í 10. bekk, foreldra, Víðistaðaskóla og félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins. Söngleikurinn er hluti af list- og verkgreinanámi nemenda í 10. bekk. Markmið sýningarinna er jafnframt að safna í ferðasjóð fyrir útskriftarferð í Þórsmörk í vor. Söngleikurinn er orðinn fastur líður í skólastarfi Víðistaðaskóla og undanfarin ár hafa yfir 1500 manns sótt þessar sýningar hverju sinni og bíða krakkarnir spenntir eftir því að fá að taka þátt. Deila Tísta