Skákstarfið hjá okkur í Víðistaðaskóla er í miklum blóma þessa dagana. Við erum með 24 drengi á unglingastigi sem hafa verið að keppa og því mikil keppni um að komast í liðið. Skólakeppni unglingadeilda bæjarins var haldin þriðjudaginn 17. mars. Skáksveit Víðistaðaskóla lenti í öðru sæti á mótinu. Drengirnir stóðu sig hrikalega vel og það munaði einungis EINU stigi milli þeirra og ríkjandi íslandsmeistaranna í Hvaleyrarskóla sem hnepptu fyrsta sætið. Svona mót eru keyrð þannig að hver skóli sendir fjóra liðsmenn til að keppa við fjóra í hinu liðinu.

Sveitin okkar:
Ringaudas Skucas 10. JÓR

Bartosz Baginski 10. SEG

Ásgeir Óli Pétursson 10. FB

Antoni Ingi Pétursson 5. HL (það má senda yngri nemendur á mót unglinga en þeir mega bara tefla á fjórða borði)

Alexander Aron Waagfjörð 10. FB

Viktor Hrafn Ólafsson 8. SH

Þeir stóðu sig allir ótrúlega vel og tefldu af miklu öryggi.