Nám og kennsla

Meginhlutverk náms- og starfsráðgjafa er að vinna með nemendum, forsjáraðilum, kennurum, skólastjórnendum og starfsfólki skólans að málefnum sem styrkja nemendur.

Náms- og starfsráðgjöf miðar að því að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, svo sem viðhorfum, áhuga, hæfileikum, getu og væntingum.

Náms- og starfsráðgjafi vinnur líka ýmsa teymisvinnu með öðrum í stoðþjónustu skólans, til dæmis umsjónarkennurum, sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi og starfsfólki Hraunsins og Hraunkots. Einnig er unnið að ýmsu velferðarstarfi með Fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar, Brúarinnar, BUGL og Þroska- og hegðunarstöð varðandi nám, líðan og framtíðaráform nemenda.

Verkefni námsráðgjafa

  • Persónulegur og félagslegur stuðningur við nemendur þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í náminu.
  • Að veita nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval.
  • Að leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi.
  • Móttaka nýrra nemenda.
  • Aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.
  • Samvinna við stoðþjónustu skólans, þverfagleg teymisvinna og seta í ýmsum ráðum skólans, til dæmis nemendaverndarráði, eineltis- og forvarnarteymi, Brúnni, áfallateymi og lausnarteymi SMT.

Námsráðgjafi vinnur í samstarfi við foreldra eftir því sem við á og foreldrar geta einnig leitað beint til námsráðgjafa.

Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda, með þeirri undantekningu sem kveðið er á um í 17. gr. laga um barnavernd.

Í viðhengi má nálgast tilvísun til námsráðgjafa sem hægt er að fylla út og senda á netfangið: [email protected]