Nám og kennsla

Frístundaheimilið Hraunkot

Frístundaheimilið Hraunkot er fyrir börn í 1. til 4. bekk. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur fyrir nemendur. Leitast er við að raða starfi upp þannig að öll börn geti tekið þátt og að starfið miði að því að byggja upp samheldni meðal einstaklinga og styrkingu hvers og eins í félagslegu samhengi.

Staðsetning

Hraunkot er staðsett á jarðhæð í A álmu skólans við hliðina á smíðastofunni en er með sérinngang sem snýr að Hrauntungu. Þar hafa 1. 2.og 3. bekkur aðsetur en  4. bekkur er með aðstöðu á jarðhæð skólans, bakatil við inngang í sal við eldhús skólans.

Skráning í frístund

Foreldrar skrá barnið í frístund á frístundavefnum Völu. Best er að senda inn skráninguna fyrir 15. júní fyrir næsta skólaár, eftir það fara umsóknir á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Skráning gildir í eitt skólaár í senn (ágúst–júní). Sjá nánar um frístund á vef Hafnarfjarðar.

Opnunartími

Hraunkot opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til 17.

  • Hraunkot er lokað í vetrarfríi, á rauðum dögum og er með 1 skipulagsdag á önn þar sem er lokað.
  • Hraunkot er opið á skipulagsdögum skólans og skertum dögum. Þessir dagar eru kallaðir lengd viðvera. Þá opnar Hraunkot kl. 8 og lokar kl. 17. Það þarf að skrá barn sérstaklega á frístundavefnum Völu og er það auglýst þegar að því kemur.

Frístundaakstur

Börn í 1.–4. bekk fá fylgd í frístundaakstur sem keyrir þau á æfingar hjá íþróttafélögum bæjarins. Skrá þarf barn sérstaklega í frístundaaksturinn í Völu. Aksturinn er ókeypis og komast öll skráð börn að, líka börn sem eru ekki skráð í frístundaheimili.

Sjá nánar um frístundaakstur á vef Hafnarfjarðar.