Það er alltaf líf og fjör hjá okkur í heimilisfræði.
Nemendur á miðstigi hafa útbúið allskonar góðgæti á þessu skólaári, til dæmis döðlubrauð, fléttubrauð, kanilköku, marmaraköku, eggjaköku, pizzu og margt fleira.

Þau eru alveg með það á hreinu að þvo hendur áður en þau hefja matreiðslu og nota svuntur.
Við höfum farið vel yfir hreinlæti, flokkun og öryggi, og nemendur vita að mikilvægt er að fara varlega þar sem ýmislegt í eldhúsinu getur verið varasamt.

Við höfum einnig skoðað matarmenningu og kynnt okkur rétti frá öðrum löndum.

Á vorönn eldum við edamame-baunir, sem mér finnst persónulega mjög spennandi. Nemendur eru mis spenntir fyrir þessu verkefni til að byrja með en svo finnst þeim lúmskt skemmtilegt að elda baunirnar og flestum finnst þær meira að segja bragðgóðar. Við notum allskonar krydd, sojasósu og sesamfræ.
Áður en við byrjum fá þau kynningu um baunir og ótrúlegt en satt eru þær nokkuð merkilegar. Það er hægt að nota baunir í marga rétti og þær eru næringaríkar, ódýrar og geymast lengi.

Þau eru öll svo flott, standa sig vel, eru frumleg og koma með allskonar góðar hugmyndir.
Lovísa Rós