Foreldrafélag

Foreldrar

Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu.

Markmið félagsins eru að:

  • Vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum.
  • Efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans.
  • Styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði.
  • Koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál.
  • Standa vörð um réttindi barna til mennta og aukins þroska.

Skólaráð

Tveir fulltrúar foreldra eru kosnir í skólaráð. Æskilegt er að annar þeirra sé einnig í stjórn foreldrafélagsins. Stjórn foreldrafélagsins, í samráði við skólastjóra, auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð.

Stjórn Foreldrafélags Víðistaðaskóla

Stjórn foreldrafélagsins skipa 9-10 manns. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldinn byrjun skólaársins.

 

Stjórn 2023–2024

Nafn Hlutverk
Björn Fálki Valsson Formaður
Halla Sigrún Sigurðardóttir Gjaldkeri
Brynja Einarsdóttir Skólaráðsfulltrúi
Þórður Ingi Scheving Bjarnason -
Harpa Björgvinsdóttir -
Tinna Dahl Christiansen -
Vala Hrönn Isabel Pétursdóttir -

Fulltrúar í Foreldraráði Hafnarfjarðar

  • Þórður Ingi Scheving Bjarnason
  • Björn Fálki Valsson

Lög

  • 1. grein

    Félagið heitir Foreldrafélag Víðistaðaskóla. Félagar teljast allir forsjáraðilar nemenda í Víðistaðaskóla.

  • 2. grein

    Markmið félagsins eru að:

    • vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum
    • efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans
    • styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði
    • koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál
    • standa vörð um réttindi barna til menntunar og aukins þroska
  • 3. grein

    Tilgangi sínum hyggst félagið ná meðal annars með því að:

    • skipuleggja og halda utan um starf bekkjarfulltrúa í hverjum bekk
    • koma á umræðu- og fræðslufundum um uppeldis- og skólamál
    • kjósa fulltrúa í skólaráð samkvæmt reglum félagsins
    • standa að upplýsingamiðlun til foreldra
    • veita skólayfirvöldum lið svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði sem bestar
    • styðja og efla hverja þá starfsemi, sem stuðlar að auknum þroska og menningu skólans
    • taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög, Foreldraráð Hafnarfjarðar og landssamtök foreldra
  • 4. grein

    Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi þess til árs í senn. Stjórn félagsins skipa 7 foreldrar eða forsjáraðilar, æskilegt er að þar af sé einn sem einnig er fulltrúi í skólaráði. Formaður skal kosinn sérstaklega að öðru leyti skipti stjórnin með sér verkum. Auk formanns skal stjórnin skipuð varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Aldrei skulu fleiri en fjórir ganga úr stjórn í einu.

  • 5. grein

    Bekkjarfulltrúar starfa á vegum foreldrafélagsins. Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra og barna og leitast við að treysta samband heimilis og skóla innan hverrar bekkjardeildar með nánu samstarfi við umsjónarkennara. Stjórn foreldrafélagsins ber ábyrgð á að bekkjarfulltrúar séu kosnir af foreldrum hvers bekkjar fyrir sig í upphafi skólaárs.

  • 6. grein

    Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert. Stjórn boðar til fundarins í samstarfi við fulltrúa foreldra í skólaráðinu með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Í fundarboði skal kynna efni fundarins.

    Verkefni aðalfundar:

    • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
    • Skýrsla stjórnar.
    • Skýrslur nefnda.
    • Lagabreytingar.
    • Reikningar lagðir fram til samþykktar.
    • Ákvörðun framlags félaga til félagsins.
    • Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna.
    • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
    • Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði.
    • Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins.
    • Önnur mál.
  • 7. grein

    Stjórn félagsins getur skipað nefndir um afmörkuð verkefni. Stjórnin ber ábyrgð á störfum nefndar og setur þeim erindisbréf.

  • 8. grein

    Formaður boðar stjórnarfundi og almenna fundi í félaginu með að minnsta kosti þriggja daga fyrirvara og aðalfund svo sem fyrir er mælt í 6. gr. Fundur telst löglegur, ef löglega er til hans boðað. Heimilt er þó að boða stjórnarfund með minni fyrirvara en áður er sagt ef brýna nauðsyn ber til. Meirihluti stjórnar þarf þá að samþykkja lögmæti fundarins í upphafi hans til þess að hann teljist löglegur. Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála á fundum félagsins. Stjórnarfundi skal halda minnst fjórum sinnum á ári, þar af tvisvar fyrir jól.

  • 9. grein

    Við Víðistaðaskóla starfar skólaráð í samræmi við 8. og 9. gr. laga nr. 91/2008. Foreldrafélag Víðistaðaskóla velur tvo fulltrúa til setu í skólaráði á aðalfundi foreldrafélagsins.

  • 10. grein

    grein. Stjórn foreldrafélagsins er heimilt að óska eftir því að foreldrar greiði framlag til félagsins. Þetta framlag er innheimt árlega og er ákveðið á aðalfundi. Gjaldið er valfrjálst.

  • 11. grein

    Ákvörðun um slit félagsins verður tekin með einföldum meirihluta á stjórnarfundi og renna þá eignir þess til skólans.

  • 12. grein

    Lögum þessum má breyta með einföldum meirihluta á aðalfundi, enda sé lagabreytinga getið í fundarboði.