Farsældarvikan er í þessari viku, 9.-13 mars og af því tilefni viljum við sérstaka vekja athygli á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Farsældarlögin eiga að tryggja að barn fái þá þjónustu sem það þarf á að halda, að fjölskyldur fái aðstoð á réttum tíma og að þjónustuaðilar vinni betur saman svo að börn falli ekki á milli kerfa. Tengiliður getur ráðlagt um þjónustu sem er í boði innan og utan skólans og stuðlað að samvinnu milli kerfa. Lykilatriði í farsældinni er aukið samstarf milli skóla og annarrar þjónustu svo sem heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og frístundastarfs. Tengiliður farsældar í Víðistaðaskóla er Íris Árnadóttir, [email protected]. Viðtalstími er eftir samkomulagi. Bæði börn og foreldrar geta óskað samtali eða ráðgjöf milliliðalaust. Einnig viljum við vekja athygli á því að Heilsugæsla Höfuðborgasvæðisins og Geðheilsumiðstöð barna munu vera með stutt erindi fyrir foreldra á TEAMS viku í þessari viku. Erindin eru hugsuð sem stutt fræðsla og verkfæri fyrir forsjáraðila barna frá 0- 18 ára. Erindin verða í hádeginu frá 12:10 svo flest geti nýtt sér tækifærið og tengst á netinu í hádeginu. Hér er hlekkur á viðburðinn og dagskrá. Fjöldi stuttra hádegiserinda í farsældarviku | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 9.mars kl 12:10 -12:30 : Skjárinn og börnin 10.mars kl 12:10 -12:30: Tengsl og samskipti 11.mars kl 12:10 -12:30: FLIKK – Netmeðferð fyrir foreldra og aðra umönnunaraðla barna með kvíðavanda á aldrinum 5-12 ára 12.mars kl 12:10 -12:30: Málþroski 13.mars kl 12:10 -12:30: Streita í foreldrahlutverkinu Bæklingur um farsæld barna Deila Tísta